25 ára afmæli Salaskóla

🎉 Þvílík hátíð í Salaskóla! 🎉

25 ára afmæli Salaskóla var einstaklega vel heppnað og mikil gleði og ánægja ríkti hjá nemendum og gestum. Þrátt fyrir rigninguna var brugðið á ráð og plan B galdrað fram og hátíðin hélt áfram! ☔️✨

Gestir okkar voru sérstaklega ánægðir með falleg listaverk, skemmtilegar uppsetningar og jákvæð skilaboð sem prýddu skólann. Nemendur stóðu stoltir og glöð við hlið foreldra sinna og sýndu þeim skólann sinn. Það var sannkölluð gleði og stoltið skein úr hverju andliti. 🥰

Takk fyrir frábæran dag og fyrir alla sem lögðu sitt af mörkum til að gera hátíðina að stórkostlegum viðburði! ❤️

 

 

Birt í flokknum Fréttir.