Í aðalnámskrá er litið svo á að útikennsla, það að flytja kennslu að einhverju leyti út fyrir veggi skólans, auðgi og styrki allt nám ásamt því að vera holl bæði fyrir líkama og sál. Útikennsla er sérstaklega nauðsynleg í náttúrufræðinámi þar sem úti í samfélagi, umhverfi og náttúru er sá raunveruleiki sem börnin eru að læra um og þurfa að þekkja, skilja og skynja. Það er því mikilvægt að skólar samþætti útikennslu í skólanámskrá sína með það m.a. að markmiði að kynna nemendunum nánasta umhverfi sitt og efla vitund þeirra og virðingu fyrir því.
Útikennslustofan í Smalaholt
5. nóvember, 2010 var sameiginleg útikennslustofa Salahverfis opnuð. Það eru skólarnir Fífusalir, Rjúpnahæð og Salaskóli sem hafa sérstaka aðstöðu þar og sjá um stofuna.
Stofan er neðarlega í Smalaholti út frá götunni Örvasölum. Hægt er að komast að stofunni frá Salaskóla um undirgöng undir Fífuhvammsveg og ganga stíg sem fer í gegnum golfvöllinn. Hún er merkt með rauðum hring inn á kortið.
Viðveru í útikennslustofunni þarf að panta. Aðgangur hefur verið sendur til þeirra sem hlut eiga að máli.
Hugmyndabanki fyrir útikennslu
Fjaran og hafið | Fjölbreyttur fróðleikum um lífverur sem lifa í fjörum og hafinu. Á vefnum er mikið myndefni, ljósmyndir, teikningar og myndbönd. |
Fuglavefurinn | Vefur um fugla sem finnast á Íslandi |
Google maps | Kortavefur Google |
Jarðfræðivefurinn | Jarðfræðivefur Námsgagnastofnunar |
Komdu og skoðaðu | Vefur unninn samvinnu við Hafrannsóknastofnunin, Iðntæknistofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Orkustofnun, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Veðurstofa Íslands og Veiðimálastofnun |
Kortavefur | Góð gagnvirk kort |
Náttúruskóli Reykjavíkur | Náttúruskóli Reykjavíkur er samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur, Skógræktarfélags Reykjavíkur og Landverndar. |
Plöntuvefurinn | Á þessum vef eru upplýsingar og myndir af rúmlega 100 íslenskum plöntutegundum. |
Veðurstofa Íslands | Vefur Veðurstofu Íslands |