Við Salaskóla starfar sálfræðingur sem vinnur greiningar- og ráðgjafarstörf. Sálfræðingur er að jafnaði í skólanum 2-3 daga í viku.
Skólasálfræðingur er Björg Norðfjörð.
Verksvið sálfræðings við grunnskóla Kópavogs
Hlutverk
Sálfræðingur sem starfar við grunnskóla Kópavogs er hluti af skólaþjónustu
sveitarfélagsins og fulltrúi skólaþjónustunnar í nemendaverndarráði.
Skólaþjónusta mótast af heildarsýn á aðstæður og hagsmuni nemenda óháð því
hver veitir þjónustuna. Sálfræðingur vinnur í nánu samstarfi við nemendur, foreldra
og fagfólk sem kemur að málefnum nemenda.
Hlutverk sálfræðinga í grunnskólum snýr að athugunum, ráðgjöf og viðtölum.
Sálfræðingar koma einnig að forvarnar- og fræðslustarfi.
Stjórnun
Sálfræðingur starfar í viðkomandi skóla og vinnur undir daglegri verkstjórn skólastjóra
og í samvinnu við starfsfólk skóla. Verkefnastjóri skólaþjónustu hefur umsjón með
sálfræðiþjónustu í grunnskólum.
Starfsfyrirkomulag
Sálfræðingur situr fundi nemendaverndarráðs en hlutverk þess er að samræma störf
þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda. Sálfræðingur situr í ráðinu sem fulltrúi
skólaþjónustu sveitarfélagsins. Sótt er um þjónustu sálfræðings með rafrænni beiðni
sem foreldrar skrifa undir með rafrænni undirskrift. Nemendur í 9. og 10. bekk geta
einnig óskað sjálfir eftir ráðgjafarviðtali án aðkomu foreldra.
Hægt er að óska eftir aðkomu sálfræðings þegar áhyggjur vakna af námsframvindu,
hegðun eða líðan nemenda. Sálfræðingur leggur mat á stöðu nemandans og leggur
fram tillögur um næstu skref í samvinnu við nemendur, foreldra og fagfólk. Íhlutun
sálfræðings getur falist í greiningu, ráðgjöf, viðtölum og þverfaglegri teymisvinnu. Ef
það er mat sálfræðings að nemandi þurfi víðtækara úrræði en skólinn veitir skal hann
vísa á slík úrræði.
Sálfræðingur kemur einnig að almennri ráðgjöf og fræðslu fyrir nemendur, foreldra og
fagfólk um málefni sem eru á hans sérsviði.
Sálfræðingar við grunnskóla Kópavogs funda reglulega með verkefnastjóra
skólaþjónustu grunnskóladeildar.