Óvissuferð 10. bekkja

Óvissuferð 10. bekkja Salaskóla verður farin þriðjudaginn 2. júní.  Verð fyrir ferðina er 11.500 kr. Greiðslu fyrir ferðina þarf að leggja inn eigi síðar en 1. Júní.  Reikn. 1135 – 05 – 750775, kt:  6706013070. Gott væri að fá að vita sem fyrst ef það eru einhverjir sem komast ekki með.  Foreldrar hafa fengið nánari […]

Lesa meira

Frí á uppstigningardag

Frí er í skólanum á morgun, uppstigningardag, eins og fram kemur á skóladagatali. Skóli verður svo skv. stundaskrá á föstudaginn.  

Lesa meira

Hjálmar á höfuðið

hjlmar_004web.jpgÍ vikunni komu góðir gestir færandi hendi og færðu nemendum í 1. bekk reiðhjólahjálma að gjöf. Gefendur voru Kiwanisklúbburinn Eldey í Kópavogi og Eimskip. Þeim eru færðar þakkir fyrir. 

Lesa meira

Sungið úti í blíðunni

Mávarnir voru í tónmennt í dag úti í góða veðrinu. Þau sungu vorlögin af mikilli innlifun við undirleik Ragnheiðar tónmenntakennara og nokkur vel valin Eurovisionlög fengu að fljóta með. Gott að láta sólina verma sig í söngnum. Skoðið fleiri myndir.  

Lesa meira

Sól og vor í Salaskóla

Þegar sólin skín úti er eins og allt verði svo miklu auðveldara í skólastarfinu okkar. Bros leikur á vör nemendanna og þráin eftir að fá að hoppa og skoppa verður svo sterk.  Allir vilja komast út í góða veðrið. Kennararnir grípa gjarnan tækifærið og færa kennsluna út undir bert loft þar sem sólin vermir allt […]

Lesa meira

Böðuðu sig í Nauthólsvík

Krummar og kjóar áttu skemmtilegan dag á ylströndinni í Nauthólsvík í dag en þangað fóru þau með kennurunum sínum í strætisvagni í morgun. Góða veðrið lék við krakkana og þau undu sér m.a. við að vaða, sóla sig, sulla í flæðarmálinu og heiti potturinn var vinsæll.  Myndirnar segja sína sögu. 

Lesa meira

Duglegir nemendur í vorskólanum

vorsklinn_001.jpgÁ hverju vori er væntanlegum fyrstubekkingum boðið að koma í skólann og setjast á skólabekk hluta úr degi. Vorskóli þessi fór fram í gær fyrir nemendur sem fæddir eru 2003. Krakkarnir báru sig vel þegar þeir hittu kennarana meðan foreldrarnir skutust á fund með skólastjórnendum. Þau fengu verkefni til að vinna og enduðu á að setja mynd af sér upp á heljarstórt tré á vegg skólans svo allir gætu séð hvað þetta eru flottir krakkar. Við hlökkum afar mikið til að fá þau í skólann næsta haust.

Smellið á lesa meira til þess að sjá fleiri myndir.

Lesa meira

Próftafla fyrir 8. – 10. bekk

Nú er próftafla tilbúin fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Hún verður send í tölvupósti til foreldra en einnig er hægt að opna hana hér til hliðar undir tilkynningum.    

Lesa meira

Íslandsmótið í skólaskák 2009

patrekur.jpgPatrekur Maron Magnússon í 10. bekk endurheimti Íslandsmeistartitil í skólaskák með yfirburðum. Íslandsmótið var haldið á Akureyri dagana 30. apríl - 3. maí 2009 og tóku fimm krakkar úr Salaskóla þátt í mótinu, þau Patrekur Maron Magnússon, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Páll Andrasons, Eiríkur Örn Brynjarsson og Birkir Karl Sigurðsson.

 

Lesa meira

Skólahreysti

Í myndasafn skólans var að koma safn mynda frá úrslitakeppninni í Skólahreysti sem fram fór 30. apríl síðastliðinn í Laugardalshöll. Eins og menn vita á Salaskóli eitt af bestu liðum landsins í skólahreysti, var í 1. sæti í undanúrslitum í Kópavogi og tók 5. sætið í úrslitakeppninni. Skólahreystiliðið okkar í ár var skipað þeim Valdimar, Tómasi, Glódísi […]

Lesa meira

Skólaráð

Skólaráð starfar skv. grunnskólalögum. Það er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélagsins um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en […]

Lesa meira

Frí í skólanum á morgun

Á morgun er frí í skólanum, 1. maí, eins og hefð er fyrir á baráttudegi verkalýðsins. Kennsla hefst aftur skv. stundaskrá mánudaginn 4. maí. 

Lesa meira