Skólaárið 2009-2010 – innkaupalistar
Innkaupalistar flestra bekkja fyrir skólaárið 2009-2010 eru nú komnir á vefinn. Við beinum því til foreldra og nemenda að kanna hvort e.t.v. séu til hlutir frá síðastliðnum vetri sem gætu nýst aftur. Óþarfi er að kaupa það sem þegar er til. 1. bekkur 2. bekkur 3. bekkur 4. bekkur 5. bekkur 6. – 7. bekkur […]
Lesa meiraSumarleyfi
Þökkum nemendum og foreldrum fyrir ánægjulegt samstarf á nýliðnu skólaári og óskum þeim góðra daga í sumarleyfinu. Skrifstofa skólans er lokuð frá 22. júní en opnar aftur 10. ágúst. Ef koma þarf skilaboðum á framfæri er hægt að senda þau á netfang skólans salaskoli@salaskoli.is.
Lesa meiraNemendur í 1. bekk
Hægt er að skoða bekkjarlista nemenda í 1. bekk skólaárið 2009-2010 með því að smella á Lesa meira.
Lesa meiraUmsjónarkennarar næsta skólaárs
Eftirtaldir kennarar verða umsjónarkennarar næsta vetur í 1. -10. bekk: (Lesa meira)
Skólaslit í Salaskóla
Salaskóla var slitið þriðjudaginn 9. júní með því að nemendur, foreldrar og starfsfólk söfnuðust saman í sal skólans - um 400 manns.
Lesa meiraHeimilisfræði í Salaskóla
Allt skólaárið er bakað og eldað í heimilisfræðinni og stuðst við uppskriftir að ýmsu tagi. Þeim hefur nú verið safnað saman hér í heimilisfræðihorninu. Einnig er hér að finna ýmsar upplýsingar og góð ráð fyrir heimilin. Smellið á viðeigandi heiti: Uppskriftabók nemenda í 1. – 4. bekk Uppskriftabók nemenda í 5. – 10. […]
Lesa meiraGóður fundur með foreldrum
Miðvikudagskvöldið 3. júní voru foreldrar barna í 5. og 6. bekk boðaðir á fund þar sem þeim var kynnt námsskipulag næsta skólaárs. Mjög góð mæting var á fundinn sem sýnir mikinn áhuga foreldra á skólastarfinu. Skólastjóri greindi frá þeim breytingum sem ætlunin er að gera á skipulagi í 6. og 7. bekk næsta vetur, en þá verður fjórum bekkjum sem nú eru í 5. og 6. bekk steypt saman í 3 aldursblandaða bekki. Í máli hans kom fram að fækkun nemenda í þessum árgöngum hefði orðið til þess að kennarar og skólastjórnendur fóru að velta upp möguleikum á breyttu fyrirkomulagi þar sem saman færi betri nýting fjármuna og mjög gott faglegt starf.
Lesa meiraDægradvölin bauð í kaffi
Krakkarnir í dægradvölinni voru með opið hús í vikunni og buðu skólastjórnendum og kennurum skólans í heimsókn til þess að skoða afrakstur vetrarins. Þar mátti sjá flottar veggmyndir eftir krakkana og furðuveruna Bob sem var búinn til úr hænsnaneti og efnisafgöngum – en krakkarnir kölluðu hana skrímslið. Síðan var boðið upp á kaffi og skúffuköku á eftir. Fleiri […]
Lesa meiraSkólaslit Salaskóla
Útskrift 10. bekkjar að kvöldi hins 8. júní. Hefst kl. 20:00. Foreldrar koma með á kaffihlaðborðið. 1. – 9. bekkur þriðjudaginn 9. júní kl. 14:00. Nemendur mæta í sínar stofur. Kennarar kveðja sína nemendur stuttlega og koma svo með þá í sal skólans kl. 14:15, þar sem skólastjóri slítur skólanum. Eftir skólaslit kl. 14:40 […]
Lesa meiraKynningafundur fyrir foreldra 5. og 6. bekkja
Fundur um kennsluskipulag næsta skólaárs í 6. og 7. bekk verður miðvikudaginn 3. júní kl. 20:00. Hvetjum alla til að mæta.
Lesa meiraAðalfundur SAMKÓP
Samtök foreldrafélaga við grunnskóla Kópavogs
Aðalfundur SAMKÓP verður haldinn fimmtudaginn 4. júní 2009 í Salaskóla og hefst kl. 20:00. Stefnt er að því að fundur ljúki um kl 21:30
Lesa meira
Námsskipulag í 6. og 7. bekk skólaárið 2009-2010
Í vetur hefur verið gerð tilraun til að vera með árgangahreinar bekkjardeildir í Salaskóla. Í ljósi reynslu okkar í vetur höfum við í hyggju að breyta svolítið kennsluskipulagi hjá okkur í því skyni að bæta enn frekar námsumhverfið til að nemendur ná góðum árangri í námi.
Breytingarnar ná til elstu bekkjanna, þ.e. frá 6. bekk og upp úr. Á unglingastiginu verða t.d. gerðar breytingar á valgreinum nemenda auk þess sem meira verður kennt í árgangablönduðum námshópum en áður hefur verið gert og þá með það að markmiði að nemendur fái í frekara mæli nám við hæfi en hægt er að gera í árgangabundnum bekkjum. Reynsla okkar af aldursblöndun á miðstigi er góð og í ljósi tilraunar okkar í vetur teljum við að hægt sé að ná betri árangri, bæði námslegum og félagslegum með aldurblönduðum bekkjum á því stigi.
Lesa meira